Saga Arentsstáls

Arentsstál ehf. er reist á gömlum en traustum grunni. Páll Arent Helgason stofnaði Arentsstál 1984 og er það því 35 ára um þessar mundir. Arentsstál hefur verið á tveimur stöðum þennan tíma. Fyrstu árin á Smiðshöfða svo lengst af á Eirhöfða en það hætti starfsemi sinni þar árið 2010. Það var svo í nóvember 2012 að tveir félagar stofnuðu litla smiðju sem fékk nafnið Gamla vélsmiðjan og var hún til húsa á Eldshöfða 16. Þann 17. september 2013 fluttu þeir svo á Krókháls 5G og endurvöktu þeir þá nafnið Arentsstál, keyptu fleiri tæki og stækkuðu reksturinn. Það var hann Magnús L. Sigurgeirsson sem sá um reksturinn. Magnús er rennismíðameistari og vélstjóri að mennt.

Nú hefur Guðmundur Örn Jensson ásamt eiginkonu sinni Önnu Maríu Ásgrímsdóttur tekið alfarið við keflinu og ætlar þau sér langt með nýja reksturinn en Guðmundur keypti rekstur þáverandi Arensstál ehf. hinn 16. september 2019. Guðmundur er gífurlega reynslumikill og þekkir reksturinn betur en flestir enda hefur hann starfað í þessum geira í fjölda ára. Guðmundur hyggst styrkja stoðir rekstursins, fjölga viðskiptamönnum og koma á fót fleiri stöðugum og arðbærum þjónustusamningum.

Starfsemi Arentsstáls

Arentsstál sinnir allri almennri járn- og rennismíði ásamt því að gera við og smíða glussatjakka, við erum með sérhannaðan tjakkabekk til að taka í sundur og setja saman allar gerðir af tjökkum. Arentsstál er með margra ára reynslu og þekkingu í tjakkasmíði og viðgerðum. Ásamt allri hefðbundinni þjónustu hannar og framleiðir Arentsstál tætara til ýmissa nota. Meðal annars hefur verið smíðaður tætari til að mala niður salt, tætari til að kurla bein og nú er verið að smíða tætara í fóðurstöð.

ARENTSSTÁL HELDUR ÁFRAM AÐ DAFNA OG STÆKKA

Guðmundur Örn
Jensson

Eigandi, Framkvæmastjóri og Vélstjóri

 822 1581
 gudmundur@arentsstal.is

Anna María
Ásgrímsdóttir

Fjármálastjóri/Bókhald

 899 7324
 annamaria@arentsstal.is

Pétur Jensen  

Verkefnastjóri/Teiknari

petur@arentsstal.is

Önnur atriði

Fyrirtækið hefur yfir að búa fullútbúnu verkstæði að Krókhálsi 5g, 110 Reykjavík. Arentsstál ehf. er öflugt fyrirtæki á sínu sviði og hefur yfir að ráða sérmenntuðu starfsfólki. Við kappkostum að skapa gott starfsumhverfi þar sem öllum líður vel. Allir nauðsynlegir innviðir eru fyrir hendi, t.a.m. samningar við birgja, víðtækt tengslanet við söluaðila og viðskiptamenn, vefsíða, símanúmer, bókhalds- og reikningakerfi. Upphafskostnaður er því lítill ef nokkur.